Casa Cook Madonna - Adults Only
★★★★Madonna di Campiglio




Um hótelið
Casa Cook í Madonna di Campiglio er hannað sérstaklega með þarfir skíðafólks í huga. Hótelið er staðsett beint við skíðasvæðið í ítölsku Ölpunum, sem þýðir að þú smellir þér á skíðin beint fyrir utan dyrnar (ski-in / ski-out). Þú sleppur alveg við rútuferðir, biðraðir og labb með þungan búnað á öxlunum – þú gengur einfaldlega út og ert mættur í brekkurnar.
Við hverju má búast á hótelinu:
- Fullkomin skíðaaðstaða: Á hótelinu er sérstök skíðageymsla með öflugum stígvélahiturum, þannig að þú ferð alltaf í þurra og hlýja skó á morgnana. Ef þú átt ekki þinn eigin búnað eða vilt prófa nýjustu módelin, þá er skíðaleiga starfrækt inni á hótelinu þar sem starfsfólk græjar þig upp fyrir daginn.
- Heilsulind og endurheimt: Skíðadagarnir geta tekið á líkamann og því er stór heilsulind á staðnum. Eftir síðustu ferðina niður fjallið er hægt að fara beint í stóru innilaugina, gufuböðin eða slökunarsvæðið til að hvíla lúna vöðva og safna kröftum fyrir næsta dag.
- Matur og drykkur: Þú þarft ekki að eyða orku í að leita að veitingastöðum úti í bæ eftir krefjandi dag. Hótelið er með eigin veitingastað sem leggur áherslu á góðan og næringarríkan mat, ásamt bar þar sem tilvalið er að setjast niður með drykk og fara yfir ferðir dagsins.
Hótelið dregur úr öllu þessu týpíska umstangi sem fylgir skíðafríum. Hér færðu allt á einum stað, beint þar sem skíðasvæðið byrjar.
Aðstaða
- Heilsulind
- Reyklaus herbergi
- Veitingastaður og bar
- Líkamsræktarstöð
- Morgunverður
- Ski in / Ski out