Frá Akureyri

Madonna frá Akureyri

Madonna di Campiglio, Ítalía
1 brottför í boði
Madonna frá Akureyri

Lýsing

Dagan 6.–13. janúar 2027 fljúgum við beint frá Akureyri til Verona. Gisting í einum glæsilegasta skíðabæ Ítalíu þar sem gæði og útivist mætast.

Madonna di Campiglio er staðsett í hjarta Brenta Dolomítanna, sem eru á heimsminjaskrá UNESCO. Svæðið er þekkt fyrir ítalska fágun, fjölbreyttar skíðabrautir og líflegt mannlíf.

Með tengingu við Folgarida, Marilleva og Pinzolo býður svæðið upp á yfir 150 km af samfelldum skíðabrautum sem henta jafnt byrjendum sem lengra komnum. Hér er að finna allt frá breiðum og sólríkum brautum í Grostè yfir í krefjandi brekkur í Spinale, sem tryggir að allir í hópnum finni eitthvað við sitt hæfi.

Hvers vegna Madonna di Campiglio?

Í Madonna renna saman sport og menning. Bærinn er bíllaus að miklu leyti, sem skapar rólegt og afslappað andrúmsloft. Eftir daginn í brekkunum er hægt að njóta úrvals veitingastaða, verslana og ítalskrar kaffihúsamenningar.

Fyrir fyrirtæki og hópa er þetta áfangastaður sem býður upp á faglegt umhverfi í bland við hressandi útivist. Við hjá Kompaníferðum nýtum áratuga reynslu okkar til að tryggja að allur undirbúningur sé til fyrirmyndar.

Skíðasvæðið og brautirnar

Madonna di Campiglio er hluti af Skiarea Campiglio Dolomiti di Brenta, sem er stærsta samfellda skíðasvæðið í Trentino.

  • Samtals km: 150 km af samtengdum brautum.
  • Erfiðleikastig: 50 km bláar brautir, 67 km rauðar og 33 km svartar.
  • Hæð: Bærinn liggur í 1.550 metrum en skíðasvæðið nær upp í 2.500 metra hæð.
  • Lyftur: Yfir 60 nútímalegar lyftur tengja svæðin Madonna, Pinzolo og Folgarida-Marilleva.

Veldu brottför

Flug

Brottför  6. janúar
Beint flug
09:00AEY
4klst 5mín
14:05VRN
6. janúarSmartwings
Heimferð  13. janúar
Beint flug
16:25VRN
4klst 10mín
19:30AEY
13. janúarSmartwings