Árshátíðarferðir sem skapa minningar

Kompaníferðir sér um um allt skipulagið svo þið getið einbeitt ykkur að skemmtuninni. Frá glæsilegum veislusölum yfir í óvænta upplifun á nýjum slóðum.

600 manna árshátíð, Haag

Árshátíðin í Kirkju, Basel

Heildarskipulag fyrir árshátíðarferðir fyrirtækja

Árshátíðin er hápunktur ársins hjá mörgum vinnustöðum. Hjá Kompaníferðum höfum við yfir 10 ára reynslu í að hanna árshátíðarferðir sem þjappa hópnum saman og styrkja liðsheildina.

a sailboat in the water

Árshátíð á skipi

Upplifðu borgina frá nýju sjónarhorni með glæsilegri veislu um borð í skipi. Öðruvísi umgjörð þar sem hópurinn nýtur sín á hreyfingu.

dish on white ceramic plate

Sameiginlegur kvöldverður

Við finnum veitingastaðina sem heimafólkið elskar. Matgæði og samtöl í vandaðri nánd.

Tjaldbúðir í Marokkó

Tjaldbúðir í Marokkó

Lúxustjöld í eyðimörkinni undir stjörnuhimni. Kvöldverður við varðeld, dansað við taktfastan trommuslátt og lifandi menningu.

Kastali í Króatíu

Kastali í Króatíu

Sögulegir salir fyrir stærri viðburði. Kastali gefur árshátíðinni tignarlegan blæ og karakter.

Kvöldverður á vínekru

Kvöldverður á vínekru

Vínsmökkun og matur beint við uppsprettuna. Sveitasæla og gæði í afslappaðri umgjörð.

Veisla í gamalli kirkju

Veisla í gamalli kirkju

Staðir með sál þar sem saga og nútímaskemmtun mætast. Eftirminnileg umgjörð í fallegum sal.

Leiðin að vel heppnaðri ferð

Við leiðum ykkur í gegnum ferlið frá fyrstu hugmynd þar til heimkomu.

1

Samráð og hugmyndir

Við förum yfir stærð hópsins, óskir ykkar og markmið. Í sameiningu finnum við áfangastað sem smellpassar við tilefnið og þarfir fyrirtækisins.

2

Grunnurinn lagður

Við sjáum um allar bókanir á flugi og gistingu. Á þessu stigi skoðum við mismunandi valmöguleika fyrir árshátíðarkvöldið og rammann utan um ferðina.

3

Einfaldar greiðslur

Við bjóðum upp á sveigjanlegar og þægilegar greiðslulausnir fyrir hópinn. Okkar markmið er að lágmarka vinnu tengiliðarins og gera fjármálin eins skýr og hugsast getur.

4

Dagskrá og skemmtun

Við bókum veislustjóra, skemmtikrafta og sameiginlega afþreyingu á áfangastað. Hver árshátíðarferð er sérsniðin að ykkar hóp svo upplifunin verði sem best.

5

Framkvæmd á staðnum

Við tryggjum faglegt utanumhald á meðan á ferðinni stendur. Okkar fólk sér um að áætlun standist og leysir úr smáatriðunum svo þið getið einbeitt ykkur að samverunni.