Árshátíðin í Lissabon

Lissabon, Portúgal
3 nætur
Árshátíðin í Lissabon

Lýsing

Lagt er af stað frá Keflavík föstudaginn 22. maí 2026 með beinu leiguflugi til Lissabon. Lending er eftir hádegi sem gefur hópnum færi á að koma sér fyrir á hóteli og nýta fyrsta kvöldið í borginni strax. Heimferðin er mánudaginn 25. maí, svo þetta er hnitmiðuð fjögurra daga ferð í vorblíðunni.

Innifalið í pakkanum er flug og gisting, en við sníðum nánari útfærslu að þörfum hvers hóps fyrir sig. Lissabon býður upp á gott úrval veitingastaða sem ráða vel við hópa og nóg er af afþreyingu í boði, allt frá rólegum siglingum um ána Tajo yfir í skipulagðar skoðunarferðir um sögulegu hverfin. Við eigum nú síðustu lausu sætin eftir í vélina okkar og erum að taka á móti lokafyrirspurnum til að fylla þau.

Þetta er góður kostur fyrir smærri fyrirtæki eða vinahópa sem vilja nýta vordagana í afslappað borgarumhverfi þar sem matur, veður og menning fara vel saman.

Flug

Brottför  22.maí
Beint flug
7:20KEFKEF
5klst 40mín
13:40LISLIS
22.maíSmartwingsQS4710
Heimferð  25.maí
Beint flug
15:30LISLIS
5klst 30mín
20:50KEFKEF
25.maíSmartwingsQS4711

Hápunktar í Lissabon, Portúgal

  • Sólseturssigling

  • Matarmarkaðir

  • Dagsferð til Cascais

  • Belém og rjómatertur

Innifalið

Innifalið í pakka

  • Beint leiguflug með Smartwings

  • Hótelgisting í þrjár nætur með morgunverð

  • Rúta fram og til baka frá flugvelli erlendis

  • Allir skattar og þjónustugjöld

Allt skipulagið er á okkar hendi — þið þurfið bara að mæta á flugvöllinn.

Hægt að bæta við

  • Íslensk fararstjórn (hópar 30+)

  • Sameiginlegur kvöldverður

  • Afþreying

  • Árshátíðarviðburður

Hafðu samband og við setjum saman pakka sem hentar ykkar hópi.Fá tilboð

Hótelvalmöguleikar

Við bjóðum upp á nokkra hótelkosti sem henta mismunandi hópum og fjárhagsáætlunum.

Empire Lisbon Hotel

149.990kr.- á mann í tvíbýli

Empire Lisbon Hotel er frábær kostur fyrir þá sem vilja gista á nýtískulegu hóteli með góðar tengingar við allt það helsta í borginni. Hótelið er staðsett nálægt Almirante Reis bre…

Hotel Borges Chiado

169.990kr.- á mann í tvíbýli

Hotel Borges er staðsett beint við Chiado-torgið í Lissabon, á einum vinsælasta stað borgarinnar. Þetta er sögulegt hótel þar sem stutt er í allt það helsta, hvort sem þú vilt kíkj…

Hotel Mundial

188.500kr.- á mann í tvíbýli

Hotel Mundial er staðsett í hjarta Lissabon, rétt við Rossio-torg og stoppistöð hins fræga sporvagns 28. Það sem gerir hótelið sérstakt er þakbarinn, en þaðan er virkilega gott úts…