Wyndham Old town

Wroclaw, Pólland
MorgunmaturNýuppgert
Wyndham Old town

Um hótelið

Wyndham Wroclaw Old Town er nútímalegt og afar stílhreint 4-stjörnu hótel með óviðjafnanlega staðsetningu. Það er staðsett í aðeins tveggja mínútna göngufjarlægð frá hinu sögufræga aðaltorgi (Rynek), sem gerir það að fullkomnum upphafspunkti til að kanna leyndardóma borgarinnar.

Hótelið býður upp á rúmgóð, björt og þægileg herbergi með öllum nútímaþægindum. Eftir góðan dag í borginni er tilvalið að slaka á í heilsulind hótelsins, en þar er að finna nuddpott, gufubað og líkamsræktaraðstöðu. Á hótelinu er einnig frábær veitingastaður sem framreiðir bæði alþjóðlega og pólska rétti, auk þess sem morgunverðarhlaðborðið fær sérstakt lof gesta.

Frábær valkostur fyrir þá sem vilja gæði, þægindi og allt það helsta beint fyrir utan dyrnar.

Aðstaða

  • Frábær morgunverður
  • 2 veitingastaðir
  • Heilsulind
  • Líkamsrækt
  • Reyklaus herbergi
  • Einkabílastæði