PURO Wrocław Stare Miasto

Wroclaw, Pólland
Morgunmatur
PURO Wrocław Stare Miasto

Um hótelið

PURO Wrocław Stare Miasto er einstaklega nútímalegt og litríkt hönnunarhótel, staðsett í hjarta gamla bæjarins. Hótelið einkennist af nýtískulegum arkitektúr, stílhreinum húsgögnum og afslöppuðu en lifandi andrúmslofti sem höfðar sérstaklega til þeirra sem kunna að meta góða hönnun.

Herbergin eru björt, naumhyggjuleg og búin nýjustu tækni þar sem gestir geta stýrt lýsingu og loftkælingu á einfaldan hátt. Við hlið hótelsins er garður þar sem gott er að næra sig, en á hótelinu er einnig frábært kaffihús og veitingastaður. Mögulegt er að fá lánuð reiðhjól til að kanna borgina.

Fullkominn valkostur fyrir þá sem vilja búa miðsvæðis á stílhreinu hóteli.

Aðstaða

  • Frábær morgunverður
  • Veitingastaður & bar
  • Reyklaus herbergi
  • Bílastæði á staðnum
  • Ókeypis WiFi