ibis Vilnius Centre




Um hótelið
Nútímalegt hótel í göngufjarlægð frá gamla bænum
Ibis Vilnius Centre er stílhreint og þægilegt hótel með góða staðsetningu. Það stendur rétt við viðskiptahverfi borgarinnar og það tekur aðeins um 10 mínútur að ganga inn í sögulega gamla bæinn. Hótelið leggur mikla áherslu á umhverfismál og sjálfbærni.
Herbergin Herbergin eru björt, nútímaleg og hljóðeinangruð. Öll herbergi eru með loftkælingu, sérbaðherbergi með sturtu og hárþurrku, sjónvarpi og ókeypis Wi-Fi tengingu. Rúmin á hótelinu eru sérstaklega hönnuð til að tryggja góðan nætursvefn.
Veitingar og aðstaða
- Morgunverður: Boðið er upp á gott og fjölbreytt morgunverðarhlaðborð á hverjum morgni.
- Veitingastaður og bar: Á hótelinu er veitingastaðurinn ibis Kitchen sem býður upp á alþjóðlega rétti, auk þess sem bar og setustofa eru á staðnum þar sem gott er að slaka á.
- Bílastæði: Neðanjarðar bílastæðahús er undir hótelinu (gegn gjaldi) með hleðslustöðvum fyrir rafbíla.
Staðsetning Hótelið er mjög vel staðsett og stutt er í helstu kennileiti borgarinnar, eins og dómkirkjutorgið og Gediminas-turninn. Strætóskýli er rétt við hótelið sem gerir allar samgöngur fljótlegar og einfaldar.
Góður og áreiðanlegur valkostur fyrir þá sem vilja þægilega gistingu í Vilnius á góðu verði.
Aðstaða
- Góður morgunmatur
- Veitingastaður
- Reyklaus herbergi
- Einkabílastæði
- Ókeypis WiFi