Jaz Casa Del Mar Beach

★★★★★Hurghada, Egyptaland
Allt innifaliðLúxus
Jaz Casa Del Mar Beach

Um hótelið

Fyrir strandelskendur sem vilja ekki missa kristaltæra bláa hafið úr augnsýn, er Jaz Casa Del Mar rétti staðurinn.  Um er að ræða einstakt hótel í Hurghada sem býður gestum sínum aðgang að  einkaströnd, loftkæld herbergi með svölum og útsýni yfir ýmist sundlaugarsvæðið eða Rauðahafið.  

Fimm veitingastaðir eru á hótelinu, ísbúð og kaffihús, heilsulind og leikjaherbergi. Sundlaugarnar eru sex talsins og eru umkringdar pálmatrjám. Vatnaíþróttir á borð við bátasiglingar og köfun eru í boði á einkaströndinni.  

Á hótelsvæðinu er einnig fullbúin líkamsræktarstöð, heilsulind og snyrtistofa. Gestir geta leigt reiðhjól, spilað tennis og notið þess að kíkja á tónleika og sýningar á vegum hótelsins á kvöldin.  

Leikvöllur er til staðar fyrir yngri gesti. 

Hurghada-alþjóðaflugvöllur er í 5 mínútna akstursfjarlægð frá Jaz Casa Del Mar Beach.

Aðstaða

  • 4 Sundlaugar
  • Einkaströnd
  • Ókeypis WiFi
  • Líkamsrækt
  • Heilsulind & nuddmeðferðir
  • Veitingastaðir & barir
HerbergistegundFjöldiVerð á mannHeildarverð
Pool view tvíbýli2+0667.111kr.1.334.222kr.
Standard herbergi - Fjölskyldu2+2500.033kr.2.000.132kr.

Ungabarn (0 - 1,99 ára) Barn (2 - 11,99 ára) Fullorðinn (12+)